Á gær skrifaði ég smáklausu á vef OR um Gísla Halldórsson verkfræðing og ylströndina.
Þetta þótti mér forvitnilegt efni.
# # # # # # # # # # # # #
Sá afleitt lið Þórs frá Akureyri steinliggja fyrir FRAM á Laugardalsvellinum í gær. Ég spái Þór falli. Þar sem Þór og KA eru þegar farin að stilla upp sameiginlegu liði í handboltanum og kvennafótboltanum held ég að hljóti að styttast í að einhvers konar íBA verði myndað í karlaboltanum.
# # # # # # # # # # # # #
Rokkstjörnufár er að grípa þjóðina og allir eru fegnir að okkar maður datt amk. ekki út í fyrstu umferð. Rak augun í að á Wikipediu sést að einungis tveir þátttakendanna hafa færslur um sjálfa sig. Þyrfti ekki einhver þjóðhollur Wiki-njörður að skrifa grein um Magna til að auka sigurlíkur hans?