Black Bottle-viskýið sem fæst í Ríkinu er langbesti fjölmöltungurinn sem seldur er hér heima. Þessi tegund er miklu rammari en gerist og gengur með blönduð viský, enda eru Islay-viský fyrirferðarmikil í blönduninni. Mæli hiklaust með þessari tegund. Ef Ríkislögreglustjóri vill kæra mig fyrir ólöglegar áfengisauglýsingar, þá verður bara svo að vera.
# # # # # # # # # # # # #
Pistill Jóns Orms í Fréttablaðinu í dag (gær) er beittur – jafnvel beyskur. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að fyrir örfáum mánuðum fengum við að hlusta á hverja fréttaskýringuna á fætur annarri af ísraelsku þingkosningunum sem gengu út á að ísraelar yrðu að kjósa Olmert yfir sig, þar sem hann væri von friðarins en andstæðingarnir ofstækis- og stríðsæsingarmenn. Það var þá aldeilis friðardúfan.
SHA skipuleggur mótmælastöðu fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna á föstudag kl. 17:30. Meira um málið á morgun.
# # # # # # # # # # # # #
Úr því að ég er í auglýsingagírnum, þá er ekki úr vegi að plögga Múlalund í leiðinni. Minjasafnið þarf að kaupa möppur og í ljós kemur að stóru bókabúðirnar bjóða bara upp á drasl. Heimsókn í Múlalund skilaði hins vegar akkúratt því sem við höfum verið að leita að, fyrir skít og kanil.
# # # # # # # # # # # # #
Eins og fram kemur í blogginu hjá frúnni höfðum við nýjar íslenskar kartöflur í kvöldmat. Það er ekki til betri matur. Frá júlí og fram í desember ætti maður að éta kartöflur í öll mál. Eftir það taka hrísgrjónin við sem meðlæti.
# # # # # # # # # # # # #
Eru auglýsingar KFC þær skuggalegustu um þessar mundir? Ég verð alltaf hálfsmeykur þegar vígalegi sköllótti maðurinn segist vilja kjúklingaborgara…