Morrissey

Ó, hvað karlinn var flottur á tónleikunum í­ kvöld. Frábærir tónlistarmenn í­ bandinu með honum og flutningurinn var miklu rokkaðri en ég átti von á.

Tvö lög vantaði: The Last of the International Playboys & Every day is like Sunday. Annars fí­nt.

Upphitunarhljómsveitin var hins vegar eitthvað það leiðinlegasta sem ég hef horft upp á á sviði. Palli Hilmars kallaði þetta draslútgáfu af Daisy Chainsaw. Ég varð strax sár fyrir hönd Daisy Chainsaw, sem var (er?) fí­nt band.

# # # # # # # # # # # # #

Vondur dagur í­ fótboltanum. Ekki orð um það meir.

# # # # # # # # # # # # #

Gluggaði í­ Grapevine-blaðið í­ dag. Þar er í­ lesendabréfadálkinum kostulegt bréf frá útgáfustjóra einhvers forlags sem ber sig aumlega yfir ritdómi ummatreiðslubók sem kom út á þess vegum. Ritdómarinn hafði ví­st skammast yfir vondri ensku í­ textanum, en ef marka má forleggjarann var það allt með ráðum gert að laga ekki textann frá höfundum – því­ það þjónaði betur stemningunni í­ henni… eða eitthvað álí­ka.

Kostuleg bréfaskipti.

# # # # # # # # # # # # #

Fyrr í­ kvöld horfði ég á X-files þátt um veru sem var hálf manneskja en hálf flatormur. Þetta kallaði fram nettan aulahroll.

Það er undarlegt til þess að hugsa að á sí­num tí­ma fannst manni þetta tí­mamótaþættir. Á árdaga Internetsins var Dana Andrews aðal-netbeibið og vann Pamelu í­ sí­ðuflettingum á leitarvélunum. Núna er staðan 28 milljónir gegn 440 þúsund fyrir Pamelu. Ef bara er farið í­ myndaleitina er munurinn ennþá meiri og flestar Dönu-myndirnar hvort sem er af samnefndri leikkonu frá miðri sí­ðustu öld. Heimur versnandi fer.