Á nýjasta fréttabréfi ísatrúarfélagsins er stutt grein um veiðiguðinn Ull. Ullur er sem kunnugt er ævaforn guð og var átrúnaður á hann að mestu aflagður á seinni stigum heiðni.
Höfundur greinarinnar stingur þó upp á að örnefnið Ullarfossar í Elliðaám dragi nafn sitt af guðinum. Sjálfum hafði mér aldrei dottið annað í hug en að örnefnið vísaði í ull af sauðfé á einhvern hátt.
Nú væri óneitanlega gaman ef þessi skýring ætti við rök að styðjast, en hálfpartinn finnst mér það nú ósennilegt. Eru einhverjir klókir íslenskumenn eða orðsifjafræðingar sem lesa þessa síðu og vilja leggja orð í belg.
– Ef kenningin fær stuðning góðra manna, mun ég hiklaust reyna að verða mér út um myndir af Ulli og tengja hann við örnefnið á safninu eða í fræðslugöngum á vegum safnsins.