Konan sem um er spurt er vinsæll rithöfundur. Systir hennar og sonur eru líka rithöfundar og eiginmaður hennar var ljóðskáld. Skírnarnafn konunnar, sem hún notar þó ekki lengur, er allsérstætt. Hún var nefnilega skírð í höfuðið á föður sínum í þeirri trú að óvenjulegt nafn (í þessu tilviki karlmannsnafn á stúlkubarni) myndi leiða til óvenjulegra afreka. – Segið svo að ekki sé full þörf á mannanafnanefnd! Beðið er um beðjunafn.