Getur einhver útskýrt fyrir mér hvers vegna útsendingastjóri sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar kýs að planta merki stöðvarinnar ofaní klukkuna sem sýnir leiktímann í beinum útsendingum frá spænska boltanum? Það hlýtur að vera hægt að útbúa þann fídus að færa Sýnar-merkið í eitthvert annað horn á skjánum í þeim útsendingum sem það er til trafala.
# # # # # # # # # # # # #
Umræða síðustu daga um Náttúrugripasafnið er furðuleg. Umhverfisráðherra þykist vera að leggja miklar tillögur fyrir ríkisstjórnina og helst má skilja málið sem svo að verið sé að velja á milli Hvanneyrar og Keflavíkur. Hvort tveggja er fráleitt. Náttúrugripasafnið (þótt lítið sé sem stendur) hefur verið skilgreint sem eitt af þremur meginsöfnum landsins og slík söfn eiga að vera í höfuðborginni. Það er nánast skilgreiningaratriði.
En það furðulegasta í þessu er þögn menntamálaráðherra. Eru allir búnir að gleyma því að það eru safnalög í þessu landi, sem gera ráð fyrir því að Náttúrufræðisafn heyri undir menntamálaráðherra en ekki umhverfisráðherra. Hvers vegna í ósköpunum lætur Þorgerður Katrín það viðgangast að óviðkomandi ráðherra þrugli um hennar málaflokk dag eftir dag?
# # # # # # # # # # # # #
Hinar beinskeyttu og málefnalegu árásir mínar á Moggabloggið eru þegar farnar að hafa áhrif. Blaðamannahjörðin hefur meira að segja gert hlé á hver-fer-að-vinna-á-nýja-tímaritinu færslunum sínum en beinir spjótum sínum þess í stað að mér og Kaninkunni.
Helstu rök þessa hóps eru á þá leið að Kaninkan sé þung og óaðgengileg. Þessi málflutningur kemur ekki á óvart frá Moggabloggsfólki, enda er Moggabloggið McDonalds bloggheimsins og þeir sem vilja bara skyndibita ráða ekki við neitt sem er þungt og óaðgengilegt við fyrstu sýn.
# # # # # # # # # # # # #
Á gær var ég að róta í gegnum dót hér á Minjasafninu sem fellur undir flokkinn „gjafir til Rafmagnsveitunnar“. Er til meiri hefndargjöf en borðfáni?
Skyldu stjórn rafveitunnar í Tampere eða Kiwanisklúbbs Blönduóss í alvörunni hafa trúað því að Rafmagnsveitan myndi setja borðveifu með merki fyrirtækisins/klúbbsins á áberandi stað í höfuðstöðvarnar? Hvað er að því að gefa bara blóm í þakklætisskyni. Þau fölna og er hent eftir viku – og bara allir sáttir.
# # # # # # # # # # # # #
Megi Moggabloggið falla milli skips og bryggju!