Hægrisinnaðir þjóðernissinnaflokkar á Evrópuþinginu hafa myndar regnhlífasamtök innan þingsins. Frá þessu hefur verið sagt í flestum blöðum og almennt ef mönnum nú ekki skemmt. The Independent er ekkert að skafa utan af hlutunum, enda blaðið oft með einhverjar bestu fyrirsagnir breskra blaða. Á forsíðunni stendur með hástöfum yfir alla síðuna:
GYPSY-HATERS
HOLOCAUST-DENIERS
XENOPHOBES
HOMOPHOBES
ANTI-SEMITES
EU´S NEW POLITICAL FORCEÂ
Svona afgreiðslu sæi maður seint í íslensku blöðunum. Húrra fyrir The Independent!
# # # # # # # # # # # # #
Stórleikurinn milli Luton og QPR var blásinn af vegna vatnselgs. Það var mjög svekkjandi þar sem ég var búinn undir kvöld fyrir framan tölvuna að fylgjast með fyrsta stórleik ársins.
Hlustaði í staðinn á tilþrifalítið kvöld í GB. Eins og svo margir dómarar hafa lent í áður, hefur Davíð greinilega komið á óvart hversu slök sum liðin í fyrstu umferðinni voru. Hann gat ekki brugðist svo glatt við því meðan á umferðinni stóð, en létti sig svo aðeins milli umferða – amk í víxlinu. Fyrsta keppnin í kvöld var t.a.m. of létt.
Enn hefur engin viðureign í ár verið jöfn. Garðabær, MH og MS eru öll vel að því komin að keppa í sjónvarpi. MH-ingar eru fínir, en ég yrði þó undrandi að sjá þá fara alla leið.
# # # # # # # # # # # # #
Palli og Kolbeinn kynntu mig í dag fyrir hræðilegum tímaþjóf. Það er skjal þar sem markmiðið er að bera kennsl á hljómsveitir frá ýmsum tímum. Best gæti ég trúað því að óvinir Vesturlanda hafi búið þessa þraut til í því skyni að draga úr framleiðni og afköstum á vinnumarkaði. Voru ekki einmitt sögur um að Rússinn hefði dreift Tetris í kalda stríðinu í þessu skyni.
Eins finnst mér líklegt að þessir sömu óvinir hafi fundið upp Moggabloggið.