Á dag/kvöld þyrfti ég að vera á þremur stöðum í einu. Þar sem við búum ennþá við kapítalískt þjóðskipulag mun ég halda mig við það sem ég fæ greidd laun fyrir að gera.
Á fyrsta lagi er landsfundur VG um helgina. Á kvöld verða almennar stjórnmálaumræður. Þeim sleppi ég. Annað kvöld verður landsfundagleðin, þá verð ég heima með Ólínu. Fyrri hluta laugardagsins og sunnudagsins ætti ég hins vegar að ná að drekka 30-40 bolla af kaffi og skrafa við káta flokksfélaga. Kannski nenni ég að taka þátt í einhverjum eiginlegum landsfundarstörfum – ég efa það þó.
Á Friðarhúsinu í kvöld verður fjáröflunarmálsverður. Glæsilegur matseðill og fróðleg dagskrá. Þetta er málið fyrir fólk sem ætlar út á safnanótt.
Sjálfur verð ég hins vegar að stýra fræðslugöngu frá Hlemmi inn í Þvottalaugar í tilefni safnanætur. Lagt af stað frá Hlemmi kl. 20. Þátttakendur fá að skyggnast inn í launhelgar hitaveitumanna á leiðinni.
# # # # # # # # # # # # #
Flottasta sjálfsmark sem ég hef séð, var þegar Sigurvin Ólafsson þrumaði boltanum uppundir slánna í eigið mark af löngu færi fyrir Framara í Eyjum fyrir mörgum árum.
Sjálfsmark Lee Dixons er líklega næstflottasta mark þessarar gerðar. Það má sjá hér.
Megi þeir Sigurvin og Lee Dixon báðir ganga til liðs við Moggabloggið!