Það eru fimm dagar frá því að ég rakaði mig síðast. Fyrstu fjórir dagarnir voru sambland af gleymsku og kæruleysi. Á gær var ég búinn að grípa raksköfuna (óþolandi hvað fólki er tamt að tala um sköfur sem rakvélar, þótt ekki sé í þeim neinn vélbúnaður) – en ákvað svo í stundarbrjálæði að leggja hana aftur frá mér.
Núna er ég sem sagt með fimm daga skegg og kláðinn er að byrja fyrir alvöru.
Það er svona eitt og hálft ár frá því að ég var síðast með andlitshár sem orð var á gerandi. Á ég að manna mig upp í að safna á nýjan leik? Tvennt mælir gegn því. Á fyrsta lagi er miklu skynsamlegra að hafa skegg yfir vetrarmánuðina, þar sem það veitir bærilegt skjól. Fyrir hitapoka eins og mig er hins vegar ekkert alltof skynsamlegt að vera kafloðinn þegar vora fer.
Á öðru lagi er það helv. kláðinn. Ef ég ákveð að láta mig hafa það – þá verða næstu tvær vikur eða svo algjört helvíti, þar sem ég verð í sífellu með hendurnar í andlitinu að nudda og klóra.
Allar skeggvaxtartilraunir mínar fara ósegjanlega í taugarnar á mömmu – og raunar þykir öllum vinum mínum þetta vera hálfhlálegar æfingar. Ég geri fastlega ráð fyrir háðsglósum við þessa færslu – Kolbeinn Proppé mun kalla klassíska Allaballaskeggið „aparass“ og aðrir munu rifja upp Robert Burns-bartana sem ég kom með heim frá Edinborg jólin 2000. Ég læt mér fátt um finnast. Það er gaman að safna skeggi.
# # # # # # # # # # # # #
Síðdegis sat ég á tveggja klukkustunda stjórnarfundi í FRAM. Þar fengum við ýmsar uppörvandi fréttir varðandi vöxt og viðgang félagsins okkar. Það eru spennandi tímar framundan á þessu sviði.
Einn leikskólakennarinn á Sólhlíð er dugleg við að kenna krökkunum að hrópa „ífram Valur“ og álíka hvatningarhróp. Hún var eitthvað að hafa áhyggjur af því að mér kynni að mislíka það. Það var óþarfi. Ég botna ekki í foreldrum sem pína afkvæmin til að styðja sín eftirlætisíþróttalið. Sjálfur gerðist ég Framari þrátt fyrir að búa í Frostaskjólinu frá níu ára aldri. Mér dettur ekki annað í hug en að barnið verði fullfært um að taka sjálfstæða ákvörðun í íþróttamálum á sínum eigin forsendum. Ef hún vill verða Valsari, þá er það guðvelkomið. Ef hún gerist KR-ingur, þá getur hún búið í dekkjageymslunni.
# # # # # # # # # # # # #
Horfði á fótboltalandsleikinn fyrr í kvöld. Það var ljóti leikurinn, enda vart hundi út sigandi fyrir rigningu og völlurinn blautur eftir því.
Megi Moggabloggið verða fyrir mannýgum vatns-elg.