Frændi minn Framsóknarmaðurinn, Pétur Gunnarsson, reynir að veita Vinstri grænum aðhald í aðdraganda kosninganna – eða öllu heldur – að lumbra á flokknum með öllum tiltækum ráðum.
Stundum slær hann slæm vindhögg…
Tökum t.d. þessa færslu. Þar segir:
VG var í dag að kynna frumvarp sem kveður á um að stjórnmálamönnum verði bannað gera samninga sem fela í sér útgjöld fyrir ríkissjóð síðustu 90 dagana fyrir kosningar. Hefðu þetta verið gildandi lög vorið 1991 hefði Steingrímur J. Sigfússon, samgönguráðherra, ekki getað skrifað undir samning um smíði á nýjum Herjólfi þremur dögum fyrir alþingiskosningarnar 1991.Â
Það hefur kurrað í frænda þegar hann sló þetta inn, yfir að hafa nú komið almennilegu höggi á helv. kommana. En betur má ef duga skal.
írið 1991 var búið að samþykkja Herjólf á fjárlögum. Leitað hafði verið tilboða í smíði skipsins og sérskipuð nefnd mælti með því að hagkvæmasta tilboði yrði tekið. Undirskrift ráðherra var því formsatriði – lokahnykkur á ferli sem hafist hafði nokkrum árum áður. íhugamenn um sögu skipasmíða geta lesið eitt og annað um Herjólfsmálið hérna.
Frumvarpstillagan sem VG kynnti í dag er afar athyglisverð. Ég vona þó að ekki hafi aðrir en Pétur frændi misskilið hana á þann veg að bannað væri að greiða úr ríkissjóði ákveðið margrar vikur fyrir kosningar. Tillagan gengur út á að ráðherrar séu ekki að gera samninga út um allar trissur um mál sem þarf að fá samþykki Alþingis fyrir. Með öðrum orðum: afgreiðsla Steingríms á Herjólfsmálinu hefði einmitt verið hárrétt samkvæmt þessum reglum!
Geta ekki allir verið sammála um að undirritanir af því tagi sem við höfum séð síðustu daga og vikur – án nokkurrar vissu fyrir samþykki löggjafans, séu óeðlilegar? Einstakir ráðherrar í ríkisstjórninni eru að skrifa undir samninga fyrir framan blaðaljósmyndara sem eru ekki á nokkurn hátt bindandi fyrir ríkið – eins og Öryrkjabandalagið komst að fyrir héraðsdómi á dögunum.
# # # # # # # # # # # # #
Á dag las ég andstyggilega frétt um stöðu vatnsveitumála á hernumdu svæðunum í írak. Ég óska ekki einu sinni Moggablogginu að drekka vatnið sem almenningur þar verður oft að gera sér að góðu.