Kristján Möller samgönguráðherra segir í Fréttablaðinu í dag að það „þýði ekkert að horfa í baksýnisspegilinn“. Þetta eru athyglisverð ummæli frá yfirmanni umferðaröryggismála í landinu. Ég hélt einmitt að baksýnisspegillinn væri eitthvert mikilvægasta öryggistækið og að hverjum ökumanni bæri að fylgjast vel með því sem gerist fyrir aftan hann…
En ég hef svo sem aldrei skilið samgöngutengt líkingamál Samfylkingarmanna. Sérstaklega minnist ég þess þegar Björgvin G. Sigurðssyni var tíðrætt um að Samfylkingarlestin væri komin af stað og yrði ekki stöðvuð. Aðeins í járnbrautarlausu samfélagi held ég að fólki geti þótt það snjöll myndlíking að bera sig saman við stjórnlausa, hemlalausa eimreið…
Megi Kristján Möller bakka yfir Moggabloggið!