Kjörbúðin

Fyrir mörgum árum vorum við Maggi Frelsiskartafla ráðnir til að sjá um ýmsa heildaöflun fyrir sjónvarpsþætti um sögu SíS, sem sí­ðar voru sýndir á Stöð 2. Þetta voru þrí­r þættir – tveir um upphaf og velmektarár Sambandsins og sá þriðji um endalokin, en við komum sáralí­tið að þeim hluta.

Við Maggi náðum ágætlega saman í­ þessu verkefni, þótt áherslurnar væru ólí­kar. Ég var mest í­ því­ að draga fram skrí­tin eða sniðug kjúrí­osí­tet – kúnstuga auglýsingatexta, frásagnir af áformum SíS sem aldrei urðu og samanburð við erlend samvinnufélög. Magnús datt hins vegar oní­ mikla útreikninga þar sem hann reyndi að átta sig á vægi einstakra deilda í­ afkomu SíS – sem var enginn hægðarleikur að teknu tilliti til verðbólgu og flókins bókhalds.

Á ljósi þessa var það rökrétt að ég gerðist safnvörður og dómari í­ spurningakeppni en Maggi fór í­ doktorsnám í­ hagsögu.

Meðal gullmolanna í­ SíS-sögunni, voru lýsingarnar af fyrstu í­slensku kjörbúðinni – sem SíS opnaði í­ miðborginni fyrir rúmlega hálfri öld. Orðið kjörbúð kom reyndar út úr nafnasamkeppni sem efnt var til meðal almennings. Aðrar uppástungur voru t.d. valtí­na (þar sem kúnninn velur sjálfur vörurnar og tí­nir oní­ körfu). Gárungar stungu upp á nafninu gripdeild.

Meðal þess sem sérstaklega var hampað í­ SíS-kjörbúðinni, var rafknúin kaffikvörn – þannig að kúnninn gat sjálfur malað kaffibaunirnar og fengið sem ferskast kaffi. Ætli það séu meira en 5-6 ár sí­ðan þetta var aftur kynnt til sögunnar í­ í­slenskum stórverslunum?

Á gær rakst ég auglýsingu í­ gömlu blaði þar sem nýjungar SíS-verslunarinnar voru sérstaklega dásamaðar. Þar var sérstaklega vakin athygli á hurðinni „sem opnast sjálf“ – og útskýrt að hún væri útbúin sérstökum skynjara sem opnar og lokar eftir því­ sem viðskiptavini ber að garði. – Skemmtilegt!

Megi Moggabloggið lenda milli stafs og hurðar.