Engin skata

Hér var engin skata étin í­ ár – ekki frekar en venjulega.

Steinunn ólst upp við skötu sem hversdagsmat fyrir austan og hefur aldrei skilið sportið í­ að éta hana yfir hátí­ðarnar.

Heima var aldrei étin skata og þegar ég var kominn fram yfir unglingsár var allt þusið í­ fjölmiðlum með viðtölum við Vestfirðinga í­ skötuáts-/typpastærðarkeppni búið að tryggja það að mig langaði ekkert til að prófa.

Ef ég á eftir að bragða skötu – þá mun það amk. ekki gerast á þorláksmessu!

# # # # # # # # # # # # #

Staksteinar barma sér yfir að vondir menn noti það gegn Þorsteini Daví­ðssyni að vera sonur pabba sí­ns. Ætli það megi þá ekki treysta því­ að Staksteinar Morgunblaðsins hætti að hamra á tengslum Svandí­sar Svavarsdóttur og Svavars Gestssonar?