Net-Mogginn birti fyrir einni og hálfri klukkustund frétt um að bankastofnanir væru að afleggja sparigrísi til að móðga ekki múslima. Nú þegar hafa tæplega tuttugu Moggabloggarar skrifað færslur um að þessir óðu múslimar séu búnir að gana of langt.
Fréttin er hins vegar gömul flökkusögn – sem fór víða árið 2005. Hluti fréttarinnar í dag er meira að segja um atburði sem gerðust eða áttu að hafa gerst fyrir þremur árum.
Það er enginn hollenskur banki að afleggja sparigrísi, svo Moggabloggarahjörðin getur varpað öndinni léttar.
En auðvitað mun net-Mogginn ekki birta leiðréttingu, því á Íslandi eru erlendar fréttir hugsaðar sem skemmtiefni þar sem flökkusagnir eru fullboðlegar.