Er ekki tilvalið að byrja vinnuvikuna á góðum greinum um pólitísk málefni?
Brendan O´Neill skrifar kúnstugan pistil um Hillary Clinton og hvers vegna fólk amist við henni á röngum forsendum. Að hans mati byggist andstaðan við hana ekki á því að hún sé kona – heldur þvert á móti að hinir frambjóðendurnir séu bölvaðar kerlingar og eiginmaður hennar sýnu verstur…
Spiked býður upp á flotta grein um baráttuna gegn róttækum íslamistum og þeirri ranghugmynd að þar séu vondir útlendingar að afvegaleiða nytsama sakleysingja – rökréttara sé að líta á uppgang slíkra hugmynda sem afurð vestrænna samfélaga frekar en utanaðkomandi ógn. – Þeir hafa reyndar birt efnislega sömu grein alloft.
# # # # # # # # # # # # #
Einu sinni var Halifax-klúbburinn á Íslandi virkur og lét mikið á sér bera. Núna eru meiri líkur en minni á að Halifax Town leggi upp laupana. Oft var þörf en nú er nauðsyn að hérlendir Halifaxar láti til sín taka!
Þegar hefur verið lagður grunnur að því að stofna nýtt lið í Halifax á rústum þess gamla – sem þá yrði í eigu stuðningsmanna félagsins, en ekki rekið í hagnaðarskyni. Hætt er við að félagið yrði að hefja leik á botni utandeildarkeppninnar. Þá mun varla mikið til þeirra spyrjast næstu áratugi.
Annars er athyglisvert hversu hratt þetta rekstrarform – að liðin séu rekin á grasrótargrundvelli af stuðningsmönnum – hefur færst í vöxt síðustu árin. Undantekningarlítið gerist þetta í kjölfar gjaldþrota félaga og því má ætla að þessi stuðningsmannafélög séu einmitt þau lið sem minnstan rekstrargrundvöll ættu að hafa. Engu að síður virðast þau standa sig betur í rekstrinum en gerist og gengur á þessu stig.
Samvinnufélög 1 : kapítalisminn 0.