Mánudagsgetraun

Seinni hluta árs 1968 leitaði dagblaðið Tí­minn álits 23 Íslendinga – jafnt þjóðþekktra sem óbreytts alþýðufólks – á atburði sem þá stóð fyrir dyrum.

Kristján frá Djúpalæk sagði tí­ðindin hryggja sig persónulega. Magnús Kjartansson ritstjóri sagði að sér stæði algjörlega á sama. Guðlaugur Rósinkranz Þjóðleikhússtjóri tók fregnunum vel. Vilhjálmur Einarsson í­þróttakappi sagðist vonsvikinn. Gylfa Þ. Gí­slasyni menntamálaráðherra þótti leiðinlegt að heyra þessa frétt. Guðmundi Daní­elssyni rithöfindi leist djöfullega á tiltækið. Jóni Skaftasyni Alþingismanni þótti þetta í­ besta lagi. Hermann Einarsson kennari í­ Vestmannaeyjum sagði þetta vera kjaftshögg.

Um hvaða frétt var fólkið að tjá sig?