Justin Raimondo er einn uppáhalds pistlahöfundurinn minn á netinu. Hans sérsvið eru bandarísk utanríkismál. Hann er einhver harðasti gagnrýnandi Bush-stjórnarinnar og notast mikið við sagnfræðileg rök máli sínu til stuðnings.
Raimondo er frjálshyggjumaður og hefur t.d. um árabil verið í hópi stuðningsmanna Pat Buchanans, sem er einhver stækasti hægrimaðurinn vestan hafs.
Raimondo er hins vegar líka yfirlýstur hommi – sem verður að teljast nokkuð fágætt í herbúðum hörðustu hægrimanna BNA.
Á ljósi þessarar stöðu, er áhugavert að lesa um afstöðu Justins Raimondo til hjónabands samkynhneigðra. Hann er í – stuttu máli sagt – á móti því. Á það minnsta þegar hommar eiga í hlut, þótt hann gefi lesbíubrúðkaupum undir fótinn.
Rökstuðningurinn er óvenjulegur og sjálfur segir höfundurinn að greinin sé: „the most politically incorrect piece I’ve ever written“. Dæmið sjálf!
# # # # # # # # # # # # #
Allir góðir menn mæta svo niður að dómsmálaráðuneyti kl. 12. Þið vitið um hvað málið snýst.