Þetta er frekar dapurt. Wikipediu-síðan um Ísland á ÓL 2008 inniheldur sem stendur einungis textann:
„Iceland is planning to send a team to compete at the 2008 Summer Olympics in Beijing, People’s Republic of China.“
Mjög slappt. Flest þátttökulönd eru komin með keppendalista. Nú mætti einhver vaskur íslenskur wikkari spýta í lófana og kippa þessu í liðinn.