Fréttaflutningur af flokksþingum stjórnmálaflokka er furðulegt fyrirbæri. Einhverra hluta vegna hafa fjölmiðlar ákveðið að úr því að viðkomandi flokkur hafi lagt svo mikið á sig við að undirbúa stóran og fínan fund, eigi hann það skilið að komast í fréttatímann með stórtíðindi á borð við:
„Varaformaður Vinstri grænna telur flokkinn eiga mikið erindi við kjósendur í næstu kosningum!“
„Formaður Samfylkingarinnar sagði í ræðu að það væri mikilvægt fyrir þjóðina að flokkurinn sitji sem lengst í ríkisstjórn!“
og
„Framsóknarflokkurinn er alls ekki glataður og leið á ruslahauga sögunnar – segir þingmaður flokksins!“
Þetta eru augljóslega ekkifréttir – og myndu aldrei sleppa í loftið nema akkúrat meðan á flokksþingum stendur.
Þess vegna þurfum við núna að sitja undir hverri „fréttinni“ á fætur annarri frá flokksþingi Demókrata – þar sem okkur eru sögð þau undur og stórmerki að sitjandi öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins vilji að forsetaefni Demókrataflokksins vinni í komandi kosningum. Hver hefði trúað því?