Mál Dennis Siim, FH-ingsins sem lék um síðustu helgi þrátt fyrir að hafa að öðllu eðlilegu átt að vera í banni, er kostulegt.
Það leiðir hugann að einu kunnasta kærumáli íslenskrar knattspyrnusögu, Traustamálinu.
Þannig var mál með vexti að Trausti Haraldsson varnarmaður úr Fram var dæmdur í leikbann á fundi aganefndar KSí. Næsti leikur var undanúrslitaleikur Fram í bikarkeppninni. Framarar vissu mætavel af leikbannsdóminum, en höfðu ekki fengið um hann formlega tilkynningu. Því hittist stjórn knattspyrnudeildar á fundi og ákvað að tefla Trausta fram í leiknum.
Framarar unnu og komust í bikarúrslitin. Andstæðingarnir urðu foxillir og kærðu leikinn. Endanleg úrslit þess kærumáls lágu ekki fyrir fyrr en daginn fyrir sjálfan bikarúrslitaleikinn sem var því í nokkru uppnámi. Fram vann kærumálið.
Og hverjir voru hinir svekktu andstæðingar Framara í Traustamálinu? Jú, auðvitað FH-ingar. Segið svo að Hafnfirðingar geti ekki lært af sögunni!