Einhverra hluta vegna er mér gjörsamlega ómögulegt að skilja kúlið í því fyrir forsætisráðherra ríkis að taka að sér að hringja bjöllu til merkis um að einhver kauphöll loki á virkum degi.
Jújú, ég get alveg skilið að það þyki töff fyrir stjórnendur kauphallarinnar að láta mann sem má með góðum vilja segja að sé frægur hringja bjöllu. – Svona á sama hátt og það er töff í huga soldánsins í Brunei að láta Elton John spila á flygil inni í lyftunni, frekar en að leika lyftutónlistina af bandi…
…en hvað í hverju felst aðdráttaraflið fyrir stjórnmálamanninn?