…myndi ég semja skáldsögu um tvíburabræðurna Jón Odd og Jón Bjarna Hjálmarssyni sem hittast aftur eftir langan aðskilnað. Jón Oddur orðinn ráðsettur gæðastjóri í stöndugu stórfyrirtæki. Jón Bjarni nýsloppinn úr tyrknesku fangelsi eftir að hafa afplánað dóm fyrir fíkniefnasmygl. Uppgjörið verður dramatískt og fjöldi kunnuglegra aukapersóna kemur fyrir.
Augljós bestseller.
En þar sem ég er ekki rithöfundur verða íslenskar bókmenntir þessu verki fátækari. Nema einhver annar fáist til að stela hugmyndinni.