Halldór ígrímsson segir í viðtali við Blaðið í dag um íraksstríðið að það sé auðvelt að vera vitur eftir á.
Þetta eru mikil sannindi. Gott að vita að forsætisráðherra lesi málshættina í páskaeggjunum sínum með athygli.
En hvað með að ræða um þá sem voru vitrir fyrir fram? Hvernig í ósköpunum getur ófullur maðurinn haldið því fram að enginn hafi efast um tylliástæður Bandaríkjamanna fyrir stríðinu á sínum tíma? Ef Halldóri ísgrímssyni tókst að leiða það hjá sér í árslok 2002 og í ársbyrjun 2003 að deilt væri um staðhæfingar Bush-stjórnarinnar, þá er það álíka afrek og að komast hjá því að heyra eitt einasta jólalag í desember.
Urr!