Eftir fimm umferðir er staðan þessi:
Jón Björn, Kolbeinn Proppé, Gunnar, Litli efnafræðingurinn & Valur Sæm hafa eitt stig. Aðrir minna.
Sjötta spurning er þung, að ég hygg. Fyrsta vísbending:
Kolbeinn kafteinn úr Tinnabókunum kemur örlítið við sögu í bókinni. Honum er mætt með svívirðingum og formælum. Hver er bókin?
# # # # # # # # # # # # #
Mætti í fína göngu ÖBÁ og samtaka aldraðra. Mitt hlutverk var að ýta Steinunni, en hjólastóllinn hennar barst í gær. Hann verður nú ekki notaður hversdags, en fyrir lengri ferðir og væntanlega búðaráp fyrir jólinn verður hann ómissandi.
Gangan var fín. Vefútgáfa Moggans sagði að hundrað hefðu tekið þátt í henni, sem var algjör steypa. Gamalreyndi róttæklingurinn í mér giskar á um 800 manns. Þegar komið var niður á Austurvöll byrjaði að rigna og dagskráin var í lengsta lagi miðað við útifund í desember. Ætli 3-400 manns hafi þó ekki staðið allan fundinn. Það var baráttuandi í hópnum.
# # # # # # # # # # # # #
Steinunn Valdís borgarstjóri stóð sig bara helvíti vel í dag og sendi grátkórnum í Samtökum atvinnulífsins tóninn. Hvernig væri að koma upp leyfiskerfi fyrir stjórnendur þessara samtaka sem gæti virkað þannig að þá aðeins að SA tækist að sýna fram á að ekkert launaskrið hafi orðið hjá stjórnendum fyrirtækjanna í landinu öðlist þeir rétt til að vola og tuða yfir kjarabótum til handa þeim lægstlaunuðu? Að öðrum kosti þyrftu þeir að borga skaðabætur til fólksins í landinu sem þarf að hlusta á kvabbið – 12 millur væri sanngjörn upphæð. Var það ekki það sem Hannes á að borga Jóni?
# # # # # # # # # # # # #
Mínir menn í Trinidad mæta Englandi, Svíþjóð og Paraguay. Það ætti að vera viðráðanlegt.
Stóri leikurinn í riðlakeppninni er þó Portúgal gegn Angóla. Þar verður gert upp við nýlendukúgunina í eitt skipti fyrir öll.