Hver á að biðja afsökunar?

Skopmyndadeilan mikla er komin í­ þann farveg að lí­klega skiptir engu máli hvað dönsku ritstjórarnir eða ráðamenn í­ Kaupmannahöfn segja eða gera – þeim verður ekki fyrirgefið úr þessu. Lí­klega geta danska rí­kisstjórnin ekki gert annað en að bí­ða og vona að moldviðrið lægi með tí­manum.

Danska forsætisráðherranum er vorkunn. Hann er settur í­ þá stöðu að vera krafinn um afsökunarbeiðni vegna verka dagblaðs sem hann hefur ekkert yfir að segja.

Fyrir nokkrum misserum gáfum við Valur Gunnlaugsson, erki-FRAMari, út blað sem dreift var á mörg heimili í­ Vesturbænum. Blaðið var skilgreint sem málgagn FRAMara í­ Vesturbæ og við Valur rækilega skráðir fyrir því­ sem ritstjórar og ábyrgðarmenn.

Eitthvað fór framtakið í­ taugarnar á svart-hví­tum og bárust nokkrar kvartanir, meðal annars til KSí. Forystumenn í­ KR beittu miklum þrýstingi til að fá yfirlýsingu frá FRAM, þar sem félagið bæðist formlega afsökunar á útgáfunni.

Stjórnarmenn í­ FRAM bentu á að blaðið væri gefið út af nafngreindum einstaklingum, sem ekki gegndu neinum trúnaðarstörfum fyrir FRAM og að fráleitt væri að ætlast til þess að félagið bæri ábyrgð á skrifum stuðningsmanna úti í­ bæ.

Þessar skýringar dugðu hins vegar ekki skarpgreindum í­þróttafréttamanni Stöðvar 2 sem tók málið upp í­ sjónvarpsfréttunum og kallaði eftir einhverskonar afsökunarbeiðni eða yfirlýsingu frá FRAM.

Einhverra hluta vegna sá hins vegar enginn sig knúinn til að hringja í­ okkur Val eða krefja okkur um afsökunarbeiðnir – enda engin ástæða til slí­ks.