Jæja, Kaninkan er vöknuð til lífsins. Allan tímann sem hún hefur verið í lamasessi, hefur hugurinn verið fullur af snjöllum bloggum sem aldrei litu dagsins ljós. Núna, þegar ég get bloggað aftur, dettur mér ekkert í hug.
* Jú annars, áðan keypti fjölskyldan sér bíl. Það er sex ára gömul Subaro Impreza, græn.
* Um helgina las ég nýja reyfarann eftir Söru Paretsky. Efast um að ég nenni að blogga um hann úr þessu. Fín bók samt.
* Barnið er búið að læra að klifra upp í stofusófann. Við liggjum í því.
* Á föstudaginn var hringt í mig og mér boðið að semja spurningar fyrir borðspil sem koma á út fyrir jólin. Afþakkaði boðið, en mikið assgoti eru menn seint á ferðinni með svona verkefni.
* Þrjóturinn Dr. Don er enn ekki búinn að senda efnin í barmmerkin. Líklega er sökin þó ekki hans heldur hinnar arfavondu bandarísku póstþjónustu.