Morgunblaðið, 20. maí 1954:
„Kjarnorku-kartöflur“ skemmast ekki
WASHINGTON – Með kjarnorku virðist mega geyma matvæli takmarkalaust án frystingar. Þannig hafa menn gert tilraunir með lauk, kartöflur og fleiri matvæli. Hafa þau geymst árum saman án þess að spillast.
Vísindamenn halda því fram, að geislun vinni á rotnunar-bakteríum. Þykjast þeir og geta sannað, að ekki sé mönnum skaðsamlegt að neyta fæðu, sem svo hefir geymzt.
Bandaríkjastjórn hefir gert 5 ára áætlun um að leita ráða til að geyma matvæli með geislun.
Alveg er það magnað hvað menn voru bilaðir á sjötta áratugnum. Það er ótrúlegt að þeim hafi ekki tekist að sprengja heiminn í loft upp margoft á þessum árum.
Sagnfræðinemi á höttunum eftir lokaritgerðarefni gæti valið margt vitlausara að rannsaka en hugmyndir Íslendinga um kjarnorkutæknina og þróun þeirra á árum kalda stríðsins.
# # # # # # # # # # # #
Fór til Ólafsvíkur í gær í frábæru veðri að horfa á góðan sigur FRAM. Snæfellsnesið er fallegur staður og líklega er Grundarfjörður sá bær á Íslandi sem hefur fallegasta bæjarstæðið.
# # # # # # # # # # # #
Las á netinu að Channel4 í Bretlandi ætli að hafa runk-þema í dagskrá sinni fyrstu vikuna í ágúst. Þar á meðal er stefnt að beinni útsendingu frá heimsmetstilraun í hópsjálfsfróun í samkomuhúsi í Lundúnum.
Á ljósi þessara fregna virðist heimsmetstilraun hverfamiðstöðvar Vesturbæjar í hóp-sippi nú í vor hálf-léttvæg eitthvað…