Fór að lesa Vísnabókina, 10. útgáfu frá 2004, sem Ólína fékk gefna fyrir margt löngu. Gamla eintakið mitt er hér einhvers staðar í drasli líka, löngu sundurtætt af lestri. Nú þarf ég að fara að grafa það upp og leggjast í samanburðarfræði.
Málið er að sumar vísurnar í bókinni eru torkennilegar og öðru vísi en mig minnti. Getur verið að búið sé að krukka í textanum? Ekki kemur neitt fram um slíkt á síðunni með bókfræðiupplýsingunum.
Dæmi:
Á kvæðinu „Krummi krunkar úti“ segir hrafninn:
Ég fann höfuð af hrúti, / hrygg og gæruskinn. / Krunk, krunk, / kroppaðu með mér nafni minn!
Var þetta ekki alltaf:
Ég fann höfuð af hrúti, / hrygg og gæruskinn. / Komdu nú og kroppaðu með mér – Krummi, nafni minn!
Það eru fleiri svona dæmi. Á vísunni um Sigga sem var úti með ærnar í haga lýkur kvæðinu ekki lengur á:
Agga-gagg, sagði tófan á grjóti (tvítekið). Gráleitum augunum trúi ég hún gjóti. Aumingja Siggi, hann þorir ekki heim.
Nú er sagt:
Ga, ga, ga, kvað tófan á grjóti. Gráum augunum trúi ég hún gjóti. Aumingja Siggi, hann ei þorir heim.
Hver ber á ábyrgð á þessu? Er hægt að fá lögbann á svona spellvirki?
# # # # # # # # # # # # #
Luton lagði Brentford í deildarbikarnum, 0:3. Illu heilli tókst einum okkar manna að verða sér út um rautt spjald með tilheyrandi leikbanni. Vonandi hefur þetta í för með sér sjónvarpsleik í næstu umferð. Það er eiginlega eini tilgangurinn með þessari keppni í seinni tíð.
# # # # # # # # # # # # #
Á Borgartúninu er verið að sprengja fyrir djúpum bílakjallara við einhvern skrifstofuturninn. Þó það sé talsverður spölur í Norðurmýrina er hér allt á reiðiskjálfi meðan á þessu stendur. Hús nágrannans á móti skemmdist í stærstu sprengingunni og hann er farinn að reka það mál gagnvart verktakanum.
Á ljósi þess hvað framkvæmdirnar þarna hafa mikil áhrif, get ég ekki sagt að ég hlakki til þess ef draumur borgarinnar (eða var það bara Dags B. Eggertssonar?) um Hlemm+ yrði að veruleika. Að sprengja djúpar holur oní jörðina í Einholtinu á eftir að valda talsverðu tjóni á gömlu húsunum í Norðurmýrinni og Holtunum. Það virðist hins vegar litlu máli skipta fyrir skipulagið í svona málum.
# # # # # # # # # # # # #
Á kvöld mættum við Steinunn á félagsfund í Reykjavíkurdeild VG þar sem samþykktar voru reglur fyrir sameiginlegt prófkjör Reykjavíkurkjördæmanna og Suburbiu. Sverrir átti stóran þátt í að semja reglurnar og er því eflaust feginn að þessari törn sé að ljúka.
Sjálfur er ég í þeirri óvenjulegu stöðu að sitja hvorki í kjörstjórn né uppstillingarnefnd. Fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar var ég í kjörstjórn/uppstillingarnefnd VG og í uppstillingarnefnd flokksins fyrir þingkosningarnar 2003 og sveitarstjórnarkosningarnar 2002. 1999 var ég í kjörstjórn fyrir prófkjör Samfylkingarinnar og 1998 í nefndinni sem samdi reglurnar fyrir prófkjör R-listans 1998 (og eini maðurinn sem var ánægður með reglurnar þegar þær voru samþykktar).
Það eru óneitanlega viðbrigði að geta fylgst með vali á framboðslista í kosningum sem áhrifalaus áhorfandi.
Svo ég monti mig samt aðeins, þá tel ég nú málið mér ekki alveg óskylt. Á landsfundi VG síðasta haust talaði ég nefnilega fyrir því í almennum stjórnmálaumræðum að VG ætti að efna til sameiginlegs prófkjörs eða uppstillingar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og kraganum. Þá hafði ég prufað hugmyndina á nokkrum flokksfélögum en fengið þau viðbrögð að þetta væri alltof framúrstefnuleg tillaga og að enginn myndi þora að láta á hana reyna.
Annað er nú komið á daginn!