Ullur

Á nýjasta fréttabréfi ísatrúarfélagsins er stutt grein um veiðiguðinn Ull. Ullur er sem kunnugt er ævaforn guð og var átrúnaður á hann að mestu aflagður á seinni stigum heiðni.

Höfundur greinarinnar stingur þó upp á að örnefnið Ullarfossar í­ Elliðaám dragi nafn sitt af guðinum. Sjálfum hafði mér aldrei dottið annað í­ hug en að örnefnið ví­saði í­ ull af sauðfé á einhvern hátt.

Nú væri óneitanlega gaman ef þessi skýring ætti við rök að styðjast, en hálfpartinn finnst mér það nú ósennilegt. Eru einhverjir klókir í­slenskumenn eða orðsifjafræðingar sem lesa þessa sí­ðu og vilja leggja orð í­ belg.

– Ef kenningin fær stuðning góðra manna, mun ég hiklaust reyna að verða mér út um myndir af Ulli og tengja hann við örnefnið á safninu eða í­ fræðslugöngum á vegum safnsins.