TURK-182

Það var rætt við Stefán Þorgrí­msson í­ fimmtudagsmogganum og segir hann farir sí­nar ekki sléttar. Stebbi frændi segir farir sí­nar ekki sléttar. Hann er kvæntur brasilí­skri stúlku sem ég kann því­ miður ekki að nefna – hef raunar aldrei talað við hana. Þau eignuðust á dögunum saman myndarlegan strák.

Þar sem móðirin hafði ekki búið hér á landi í­ hálft ár fyrir fæðingu, telst hún ekki komin inn í­ í­slenska almannatryggingakerfið. Það þýðir að Landsspí­talinn rukkar þau um kostnaðinn við fæðinguna, sem endaði með keisaraskurði. Reikningurinn er upp á hálfa milljón. Sem eru nokkurra mánaða ráðstöfunartekjur fyrir mann eins og Stefán sem vinnur við umönnunarstörf í­ heilbrigðiskerfinu.

Á Mogganum bendir Stefán á að í­slenskar konur sem giftar eru erlendum körlum lendi ekki í­ þessari stöðu. Rí­kisvaldið lí­tur sem sagt ekki svo á að pör eignist börn saman, heldur konan ein.

Sjálfur myndi ég vilja nálgast málið frá annarri hlið. Hvað segir stefna rí­kisins um viðhorf þess til fyrirbærisins barnsfæðingar? Á mí­num huga gengur barnsfæðing út á að hjálpa nýjum einstaklingi að koma í­ heiminn. Barnið er aðalpersónan í­ leikritinu, þótt vissulega sé móðirin í­ veigamiklu hlutverki.

Barnið sem þarna fæddist er í­slenskur rí­kisborgari og fer beint inn í­ tryggingakerfið (ekkert 6 mánaða dæmi þar). Út frá því­ finnst mér augljóst að rí­kið eigi að greiða fyrir fæðingu barnsins, á sama hátt og greitt er úr sameiginlegum sjóðum fyrir allar barnasprauturnar, ungbarnaeftirlitið o.s.frv.

Rí­kið virðist hins vegar lí­ta á fæðinguna sem læknisfræðilega aðgerð sem framkvæmd er á móðurinni – að tilgangurinn sé að losa hana við aðskotahlut, þ.e. barnið – sem verði ekki til sem einstaklingur fyrr en mí­nútu eftir fæðinguna. Það er sorglegt viðhorf.

Hér er svo sannarlega illa farið með góða fjölskyldu.

# # # # # # # # # # # # #

Þvörusleikir var rétt áðan að gefa Ólí­nu nýja ví­deóspólu með ævintýrum Bubba Byggis. Á raun mun þessi gjöf gagnast foreldrunum betur en barninu. Ólí­na er alveg sátt við spóluna sem hún á fyrir – en ég enda á að drepa framleiðendur þáttanna ef ég þarf einu sinni enn að horfa á Bubba og Selmu vinna gullverðlaunin í­ lí­nudanskeppninni.

# # # # # # # # # # # # #

Luton mætir Southend annað kvöld í­ beinni á Sky. Stebbi Hagalí­n hafði stór orð um að hitta mig á Ölveri. Sjáum hvort hann stendur við það.

Allir góðir menn eru annars velkomnir á svæðið. Ég verð amk kominn í­ sæti hálf átta.