Hr. Amazon í Bretlandi er búinn að gjaldfæra á VISA-kortið mitt, sem hlýtur að þýða að það sé pakki á leiðinni til mín. Það er skemmtilegt, ekki hvað síst vegna þess að þetta er eitthvað sem ég pantaði fyrir óralöngu í hálfgerðu bríaríi og er væntanlega furðulegur samtíningur. Þar sem ég bað um að sendingin bærist öll í einu, hefur það tekið langan tíma að skrapa öllu saman og núna er ég búinn að steingleyma hvað þetta var. Jú – það var ein teiknimyndasaga og geisladiskur með fyrirlestri Marks Steel – en meira man ég ekki.
Þetta verður því eins og að opna óvæntan afmælispakka – sem er reyndar nokkuð nærri lagi, því ég, Stebbi Hagalín og Geir Haarde fögnum ammælinu okkar á páskadag.
# # # # # # # # # # # # #
Kalli í knattspyrnu var rifjaður upp eftir fótboltatímann áðan. Ef ég man rétt birtust fyrstu Kalla-sögurnar strax í fyrsta ABC-blaðinu (ég var áskrifandi) og gott ef þær héldu ekki áfram allt fram að sameiningunni við Æskuna (þá var Þóra systir tekin við áskriftinni).
Ef ég man rétt birtust Kalla-sögurnar í rækilega vitlausri röð. Á fyrstu ABC-blöðunum var Kalli kominn í landsliðið eða að spreyta sig með meistaraflokki stórliðs – en síðar var hoppað aftur í tímann og Kalli átti í mestu vandræðum með að halda sér í skólaliðinu.
Á tímabili var Kalli líka að spila krikket – það fór nú fyrir ofan garð og neðan hjá flestum krökkum.
# # # # # # # # # # # # #
Tengdapabbi og Helga koma í bæinn á miðvikudagskvöldið og verða í amk viku. Þá verða jólin og páskarnir hjá barninu – í það minnsta páskarnir… (hér væri gott að hafa sneriltrommu).
Eitthvað segir mér að Ólína eigi eftir að teyma afa sinn ótal ferðir á róluvöllinn og að vart megi á milli sjá hvort skemmtir sér betur.
# # # # # # # # # # # # #
Fór á anarkistabíó í Friðarhúsi í kvöld og át grænmetiskarrý til styrktar einhverri feminískri anarkistaráðstefnu í Króatíu (það gerist nú varla meðvitaðra!)
Myndin sem sýnd var, fjallaði um baráttu Sama og umhverfisverndarsinna við skógarhöggsmenn á griðlandi hreindýra í Lapplandi. ímyndin sem maður hefur af finnska pappírsiðnaðnum er mjög jákvæð – að fjölda trjáa sé plantað fyrir hvert eitt sem fellt er o.s.frv. En þessi mynd kallar á ákveðið endurmat.
Það var sömuleiðis athyglisvert að sjá yfirmann finnsku lögreglunnar skilgreina Greenpeace sem alþjóðleg hryðjuverkasamtök.
Megi Moggabloggið verða stappað í pappamassa!