…er án efa eitthvert andstyggilegasta band sem fram hefur komið.
Þessi hljómsveit virðist ástunda það eitt að taka ágætislög og breyta þeim í lyftutónlist. Það keyrir þó um þverbak þegar þau leyfa sér að hrófla við klassískum Dead Kennedys-lögum. Ljótt, ljótt sagði fuglinn!
# # # # # # # # # # # # #
Nú er Samkeppniseftirlitið að reyna að bösta MS. Ég get ekki haft samúð með Mjólku. Fyrirtæki sem birtir auglýsingar með Marteini Mosdal í sjónvarpi á einfaldlega allt illt skilið.
Megi Moggabloggið sitja undir kvöldskemmtun með Ladda í gervi Herra Mosdal.