Ég hef áður hrósað bók Rons Jonsons: Them – Adventures with extremists. Þetta er einhver fyndnasta bók sem ég hef lesið – amk. fyndnasta bók sem ég hef lesið um fólk sem aðhyllist samsæriskenningar (sem vissulega þrengir hringinn nokkuð).
Á gær rifjaði ég upp einn besta kaflann í bókinni, þar sem höfundur lýsir fundi sínum með þáverandi leiðtoga Ku Klux Klan, sem kepptist við að bæta ímynd samtakanna með hjálp sjálfshjálparbóka – þar sem áhersla er lögð á að styrkja jákvætt hugarfar en draga úr neikvæðum málflutningi. Þannig var talsverð áhersla lögð á að félagsmenn mættu hvorki nota orgin negro eða nigger.
Þegar Ron Jonson skildi við Ku Klux Klan-mennina var óljóst hvernig hinum almenna félagsmanni myndi takast að tileinka sér hina jákvæðu hugmyndafræði leiðtogans, sem miðaðist greinilega að því að tryggja völd hvíta kynstofnsins með því að breyta KKK í Rotary-klúbb. Ætli honum hafi ekki verið sparkað fljótlega? Það getur varla verið mikið fútt í að vera í kynþáttahatarasamtökum sem reyna að uppræta neikvæða strauma…