Brýnt

Mér finnst það hörmulegt að Ringo Starr hafi komið til landsins og farið aftur án þess að fjölmiðlum hafi tekist að rifja almennilega upp þegar hann mætti í­ Atlaví­k fyrir skrilljón árum og var á fyllerí­i yfir verslunarmannahelgi.

Hvernig stendur á því­ að Jakob Frí­mann Magnússon er ekki kallaður í­ fleiri viðtöl til að rifja upp þessa skemmtilegu sögu? Hvað með söguna af koní­akinu sem Ringo blandaði út í­ kók? Eða hrossinu sem hann reyndi að sitja? Hvers vegna má ekki rifja upp þessar sögur sem við höfum nánast aldrei fengið að heyra? – Það mætti jafnvel gefa Jakobi eitthvert hnyttið viðurnefni, eins og „Bí­tlagæslumaður“.

Mér finnst það sláandi hvernig fjölmiðlar reyna með kerfisbundnum hætti að þagga niður kynni Jakobs Frí­manns og Ringo. Það er ekki á hverjum degi sem Íslendingur drekkur með frægum manni – við eigum rétt á að fá að heyra þessa skemmtilegu sögu aftur og aftur og aftur…

Jafnframt mætti Jakob Frí­mann segja oftar skemmtilegu söguna af fitubollunni sem var afklædd og máluð blá í­ Húnaveri.