Stjórnmálaskýring mín í síðustu færslu hefur rækilega verið skotin í kaf með atburðum dagsins.
Það breytir þó ekki þeirri skoðun minni að nýi meirihlutinn geti lent í mjög miklum vandræðum ef ekki fæst einhver sátt á milli Margrétar Sverrisdóttur og hennar gömlu félaga í Frjálslynda flokknum. Vonandi hafa Svandís og Dagur gert slíka sátt að skilyrði fyrir þátttöku hennar í meirihlutanum. Annað gæti komið í bakið á mönnum…