Fyrstu 2-3 vikurnar af nýju ári rugla ég alltaf saman ártölum og skrifa það liðna af gömlum vana.
Þetta gildir greinilega líka um stjórnmálamenn sem fara úr meirihluta í minnihluta, sbr þessa færslu Jórunnar Frímannsdóttur borgarfulltrúa: Ég skil ekki hvers vegna fulltúar minnihlutaflokkanna settust ekki sjálfir í stjórn OR og létu stjórnina um að fara ofan í saumana á þessum samruna. Hvaða tvíverknaður er þetta, ég skil ekki tilganginn með þessum vinnubrögðum. Hvaða umboð hefur stjórn OR í dag?
– Nema þetta sé meðvitað… kannski Sjálfstæðismenn neiti hreinlega að viðurkenna að þeir séu ekki lengur við völd og muni halda áfram að tala um hina sem minnihlutaflokkana?
# # # # # # # # # # # # #
Hvaðan kemur sjónvarpsfólki sú hugmynd að það sé sniðugt að enda gamanþætti á „hnyttnum“ mistökum – sem einkum ganga út á einhver leikarinn man ekki næstu línu eða einhver byrjar að flissa? Menn ættu kannski að taka þessa stefnu upp í allri annarri dagskrárgerð, það yrði stórsparnaður í því fólgin að lengja alla fréttatíma og spjallþætti með mörgum mínútum af stamandi þulum og smáóhöppum?
# # # # # # # # # # # # #
Barði er snillingur. Ég held með honum í söngvakeppninni. Ólína sýnist mér vera á sama máli – amk. hoppaði hún mest og söng í tannkremstúbuna meðan á þessu stóð.
# # # # # # # # # # # # # #
Tap gegn Crewe. Við erum enn án sigurs á útivelli í deildinni, sem er bölvað. Þetta lofar ekki góðu fyrir Everton-leikinn í næstu viku.