Ég er umkringdur Liverpool-stuðningsmönnum, enda heldur annar hver maður af minni kynslóð með því liði.
Yfirleitt láta þeir sér nægja að tuða yfir því að hinn eða þessi leikmaðurinn sé meiddur og láta eins og liðið vanti bara herslumuninn uppá að blanda sér í baráttu um Englandsmeistaratitilinn (sem er firra). Um þessar mundir tala þeir hins vegar mest um fjármál, eignarhald og skuldir.
ín þess að hafa náð að kynna mér málið sérstaklega sýnist mér að vandinn liggi í því að Liverpool hafi verið keypt af hópi íslenskra útrásarvíkinga og Dögg Pálsdóttur.
Það lýsir sér í því að:
i) Eigendurnir áttu sjálfir enga peninga – heldur keyptu klúbbinn að öllu leyti fyrir lánsfé og stóluðu á að endurfjármögnunin myndi reddast einhvern veginn.
og
ii) Þeir sjá enga ástæðu til að borga til baka peningana sem þeir hafa fengið lánaða.
– Eftir á að hyggja hefði Luton kannski átt að gefa Liverpool eftir hagnaðinn af bikarleiknum um daginn…