Á ljósi dómsins í blogg-meiðyrðamáli Ómars R. Valdimarssonar ætti ég kannski að láta athuga lánstraustið hjá bankanum mínum. Ómar var nefnilega gerður að umræðuefni á þessari síðu fyrir alllöngu – og dróst raunar sjálfur inn í þá umræðu.
Það gætu legið einhverjir þúsundkallar í þessu…
# # # # # # # # # # # # #
Luton færðist skrefi nær falli niður í neðstu deild í dag. Liðið er sundurtætt og á sér ekki viðreisnarvon.
Samt er þetta gleðidagur því stuðningsmannahópurinn hefur tekið við stjórn félagsins (þó það sé enn í greiðslustöðvun). Væntanlega tekst að koma liðinu úr greiðslustöðvun fyrir lok tímabilsins. Hvort að við þurfum að byrja tímabilið í gömlu fjórðu deildinni með stigafrádrátt verður að koma í ljós – en það er líklegt.
Aðalmálið er að komast á botninn, til að félagið hætti amk að sökkva og við náum viðspyrnu.
# # # # # # # # # # # # #
Steinunn lagði fram lagafrumvarp í dag – og þau raunar tvö. Það er stór áfangi og gleðilegur.
# # # # # # # # # # # # #
Á tímahraki ákváðum við að borða kvöldmatinn á skyndibitastað í Skeifunni – þetta er erlend keðja með ítalskt nafn sem segist bjóða upp á ferska ítalska matreiðslu.
Þetta reyndist það daprasta sem ég hef séð á veitingastað.Diskarnir úr pappa, glösin úr pappa, hnífapörin úr plasti og maturinn líka. Ég gef þessari keðju hálft ár.