Laugardagur kl. 15:00 – Leiðrétting! Færð hafa verið fyrir því gild rök að greinin sem vísað er til hér að neðan sé ekki um Sturlu heldur alnafna hans. Biðst afsökunar á ruglingnum.
Sturla Jónsson hefur verið mikið í fréttum upp á síðkastið. Færri vita að hann er áhugamaður um yfirskilvitleg fyrirbæri og hefur orðið fyrir árásum ærsladrauga eins og lesa má um hér.
Á viðtalinu er lýst sérstæðu atviki sem Sturla hefur lent í við akstur:
Eitt sinn þegar ég var að keyra bíl féll á mig eins konar stjarfi og ég gat mig hvergi hreyft. Skyndilega sveiflaðist ég út úr líkamanum, aftur í bílinn og síðan út undir beran himininn. Bíllinn varð náttúrlega stjórnlaus og fór á næsta bíl. Úr þessu varð síðan fjögurra bíla árekstur. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig mér leið þegar lögreglan kom á vettvang og vildi fá skýringu á þessu atviki.
* * *
Viðbót, kl. 14:00 – Mér skilst að Sturla Jónsson þræti fyrir viðtalið sem ég tengi á hér að ofan.