DV birtir í dag tekjur nokkurra bloggara – þar á meðal mín.
Mér er stórum létt, enda frekar spældur yfir að hafa dottið út úr tekjublaði Mannlífs milli ára.
íhugamenn um tekjuþróun í bloggheimum gætu hafa tekið eftir því að tekjurnar hafa lækkað allverulega milli ára. Skýringin er sú að ég kenndi miklu minna í Háskólanum á árinu 2007 en 2006 – var í færri launuðum aukaverkefnum og tók mér nokkurra mánaða launalaust leyfi í lok síðasta árs.
Það er því engin ástæða til að senda út afkomuviðvörun strax.