Forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag er stórmerkileg. Það er gott fyrir okkur borgarana að vita að fv. forsætisráðherra hafi staðið vaktina og gætt þess að hjúskaparlög væru ekki brotin. Spurning hvort fólk sem verður fyrir heitrofum geti farið með mál sín beint í Stjórnarráðið?
Annars var ég að reyna að botna í fréttinni þegar ég las hana á hlaupum milli þess að klæða grísinn og koma í leikskólann.
Mér sýnist helst að Davíð hafi haft áhyggjur af því að ekki væru fullnægjandi gögn til um skilnað núverandi forsetafrúar – með öðrum orðum: hann hefur óttast að hún yrði uppvís að fjölveri.
Fjölkvæni (og væntanlega fjölveri líka) er refsivert smkv. íslenskum lögum. Hver eru viðurlögin? Fangelsi? Sektir?
Á gegnum tíðina hafa nokkrir karlar verið nappaðir fyrir fjölkvæni, en hefur fallið dómur yfir konu fyrir fjölveri?
Og hvað með lögin um staðfesta samvist? Er sá t.d. fjölkvænismaður sem reynist í senn í hjónabandi og staðfestri samvist? Það hlýtur eiginlega að vera… – eða er hér gloppa í lögunum?
Cue: besserwissera-lögfræðingar í athugasemdakerfinu…