Mogginn barst heim í morgun. Það kom nokkuð á óvart þar sem við sögðum upp áskriftinni í gær.
Fyrir ári síðan fékk Steinunn tilboð um að kaupa Moggann í heilt ár fyrir 10þúsund kall. Hún tók því og við höfum verið áskrifendur fyrir 900 kr. á mánuði. Við erum hins vegar ekki til í að greiða írvakri fullt áskriftargjald. Ekki út af blankheitum heldur af því að írvakur er írvakur.
Við erum samt ekki harðlínufólk í þessum efnum. Mamma og pabbi hafa frá árinu 1984 keypt Moggann í aukaáskrift, beint af blaðberanum (eða öllu heldur tugum blaðbera á þessu langa tímabili). Þau hafa borgað svipaða eða sömu upphæð og almennir áskrifendur, en getað kætt sig við að eigendum Moggans hafa ekki fengið krónu af þeirri upphæð.
í 25 ára tímabili er þetta orðin dálagleg upphæð.
Svona eiga neytendur að vera!