Fyrr á árinu fór ég við fjórða mann á leik Darlington og Luton. Þar furðuðum við félagarnir okkur á ógnarstórum leikvangnum með rétt um 4.000 hræður á 20.ooo manna vellinum.
Rekstrarmódel Darlington FC hefur treyst á að liðinu takist að koma sér upp um 1-2 deildir. Annars getur dæmið ekki gengið upp til lengdar – áhorfendurnir eru einfaldlega ekki nógu margir.
Eftir heimsóknina hef ég fylgst með Darlington með öðru auganu og hálft í hvoru vonað að liðið kæmist upp í ár. Síðustu vikurnar hefur uppskeran á knattspyrnuvellinum hins vegar verið heldur rýr. Svo virðist sem eigendurnir séu búnir að afskrifa möguleika sína þetta árið – tapleikur gærkvöldsins var líklega kornið sem fyllti mælinn.
Nú upplýsir staðarblaðið í Darlington að gert sé ráð fyrir að félagið fari í greiðslustöðvun í dag. Gerist það fær félagið sjálfkrafa tíu mínusstig og dettur niður fyrir miðja deild (hafa nú 51 stig í sjöunda sætinu sem gefur umspilsrétt). Þetta þarf félagið að gera fyrir miðjan mars, til að tryggja að stigafrádrátturinn verið á þessu keppnistímabili en ekki hinu næsta.
Hætt er við að greiðslustöðvunin muni ekki einungis fokka upp þessu ári hjá Darlington, heldur einnig því næsta. Takist liðinu ekki að ná nauðarsamningum í samræmi við reglur ensku deildarinnar, verður því refsað með frekari stigafrádrætti. Ekki er ólíklegt að það yrðu 12-15 stig í viðbót, sem væntanlega myndu dragast af liðinu í byrjun næstu leiktíðar. Það eru vondir dagar framundan hjá stuðningsmönnum Darlington…
# # # # # # # # # # # # #
Af mínum mönnum er það að frétta að enn einn naglinn í líkkistu Luton var rekinn í gærkvöld. Við gerðum jafntefli gegn Accrington Stanley á útivelli, markalaust. Á sama tíma vann næstneðsta liðið, Bournemouth með marki á lokasekúndunni. Þriðja neðsta liðið, Grimsby, tapaði reyndar 2:3 á heimavelli eftir að hafa komist í 2:0. Strangt til tekið erum við því einu stigi nær öruggu sæti eftir gærkvöldið, en það breytir því ekki að úrslitin voru slæm.