Forsíðufréttin

Forsí­ðufrétt Fréttablaðsins fjallar um stjórnendur Kaupþings sem voru leystir undan ábyrgðum vegna lána til hlutabréfakaupa í­ bankanum. Skatturinn lí­tur á þetta sem niðurfellingu skulda og þar með skattskyldar tekjur.

Augljóslega hefði næsta spurning blaðamannsins átt að snúast um 20% niðurfellingu Framsóknarmanna.

Það hlýtur að vera skilningur skattsins miðað við þetta að 20% niðurfelling á skuldum heimilanna væri skattskyld. Rí­kið myndi því­ hala vel inn á þessari aðgerð – en heldur tekur það nú glansinn af kosningaloforðinu… eða hvað?