Djöfullinn snýr aftur…
Hahaha… alveg hefði ég mátt segja mer það sjálfur að það væri minn gamli bekkjarbróðir og sessunautur úr menntó, Pétur Rúnar Guðnason, sem stæði fyrir síðunni www.xxxd.is – Pétur Rúnar, sem var yfirleitt kallaður „Pétur djöfull“ eða bara „Djöfullinn“ er höfuðsnilingur og erkitölvunjörður. Þetta tiltæki virðist hins vegar hafa runnið gersamlega á rassinn, því það var ekki fyrr búin að birtast grein um þetta á því stendauða vefsvæði Vísi en Djöfullinn var búinn að loka síðunni. – Það hefði verið nær hjá honum að byrja aftur að blogga frekar en að garfa í svona rugli.
Annars er alltaf skemmtilegt að fylgjast með því síðustu klukkustundirnar fyrir kosningar hvað allir fara á taugum. ímist vilja menn halda að sér höndum eða gera eitthvað út í loftið og svo er fólk á nálum yfir því hvort hin eða þessi taktíkin sé að virka eða hafa þveröfug áhrif.
Það er samt ekki hægt annað en skemmta sér yfir konseptinu: „fáðu SMS frá súperfyrirsætu…“ – Hugmyndin um fjöl-SMS sendingar frá fegurðardrottningum og bikinígellum er jafnvel súrari en klámsíður sem lofa blautlegum bréfaskriftum við klámmyndastjörnur í gegnum netið.