Jæja, skammvinnum tónlistarferli besta bloggarans er lokið í bili.
Gerði þá reginskyssu í gær að sleppa hljómsveitaræfingu fyrir matarboð. Palli hljóp í skarðið og söng. Halli tók við bassanum í staðinn.
Þar sem Palli kann ekki rasskat á bassa en var síst verri söngvari en ég, var hann hækkaður (eða lækkaður) í tign og útnefndur söngvari pönkhljómsveitarinnar Tony Blair í minn stað. Halli er orðinn bassaleikari.
Ég hef verið rekinn úr minni fyrstu hljómveit. Verð ég hinn nýi Pete Best og ver það sem eftir er ævinnar í að harma það að hafa ekki orðið milljóner og súperstjarna? – Vonandi fæ ég að troða upp sem gestanúmer í Launaþrælnum á tónleikum…