Úff, þetta reyndust vera áfengispáskarnir miklu.
Fórum á skírdag í sumarbústað á Bjarteyjarsandi í Hvalfirði – þar sem Stebbi Hagalín hélt grillveislu í tilefni af afmælinu sínu (og mínu). Eftir viðkomu í heitum potti skriðum við Steinunn í bælið á fimmta tímanum, fyrst manna. Nafni fær mörg prik fyrir snilldarveislu.
Föstudagurinn langi – rólegheit. Buðum reyndar tengdó og Guðmundi mági í mat. Annars rólegt.
Laugardagurinn fór í brúðkaupsveislu. Höskuldur, móðubróðir Steinunnar var að kvænast Úllu – konu sinni til tveggja áratuga. Betra er seint en aldrei. Enduðum á Dillon ásamt yngri kynslóð veislugesta.
Á gærkvöld buðum við Þóru systur í mat. Töldum okkur í góðum málum þar sem bjór og vínstaða heimilisins bauð ekki upp á mikið svall. Tók ekki með í reikninginn viksý-skápinn og að Þóra dreif okkur með heim til vina sinna. Við tók þriðja fyllerí páskahelgarinnar.
Ég er of gamall í þetta helvíti.