Það eru 28 dagar í fyrsta leik Íslandsmótsins, þar sem Fram tekur á móti Víkingum. Vonandi á þjóðarleikvanginum, en annars á þeim fúla Valbjarnarvelli.
Er þetta árið? Munum við rísa í hæstu hæðir? Erum við að tala um Inter-toto; bikarúrslit og Drago-styttuna – eða fer allt á versta veg?
Framherjar eru hvergi deigir. Á gær hittumst við í Framheimilinu til að undirbúa verkefni sumarsins. Að því loknu var haldið á Players í Kópavogi að horfa á fótbolta. Með í för var rúmensku þjálfarinn, Jón G. Þetta er greinilega alvörumaður sem ég bind miklar vonir við.
Skelli mér á Fram – Þrótt í deildarbikarnum á eftir.
* * *
Gestagangur á Mánagötunni um helgina. Þórey, vinkona Steinunnar gisti ásamt börnum. Þau glömruðu á píanóið í stofunni – það ætti að lækka rostann í nágrönnunum. Jafnframt fundu þau góð not fyrir litla boltann sem Steinunn notar til að nudda á sér iljarnar. Hann er sannarlega harður en dugar vel til knattspyrnuiðkunar á ganginum. Ekki hafði ég áttað mig á því fyrr að svona góður sparkvöllur leyndist í íbúðinni miðri.
* * *
Barmmerkjagerð í kvöld. Við Palli tókum að okkur heljarmikið verkefni fyrir karlahóp Feministafélagsins. 1.500 merki, hvorki meira né minna. – Þetta mun leiða til bakverkja og vöðvabólgu, en hvað gerir maður ekki fyrir strákana…
* * *
Og rétt að lokum – fyrir innréttinganördana sem lesa þessa síðu:
Nú er Steinunn eitthvað að fá í magann yfir því að mósaíkflísar á baðherbergisgólfið muni þýða endalaus vandræði við þrif. Sjálfur hef ég ekki stóráhyggjur af þessu, enda varla nema um tveggja fermetra flöt að ræða – en hvað segja lesendur?
Eru mósaíkflísar á gólfi til vandræða?
Þekkja menn dæmi um að þetta hafi verið gert og þá með hvaða árangri?
(Ekki að ég búist við miklum svörum. Ég fæ helst aldrei neinar athugasemdir á þessa síðu nema um fánýta hluti.)