Okkar á milli í hita og þunga dagsins
Jæja, þá er frábær helgi að baki. Ég held að ég hafi ekki komið svona úthvíldur til vinnu í vikubyrjun í óratíma – og það þrátt fyrir að framleidd hafi verið nærri 1.500 barmmerki um helgina.
Á laugardagskvöldið var R-listinn með hátíð á nokkrum börum á Ingólfsstrætinu, þ.á.m. Ara í Ögri, sem er besti barinn í borginni um þessar mundir. Þar stóð Kata Jakobs sveitt við að grilla pulsur, á meðan liðleskjurnar og aumingjarnir í kosningastjórninni gaufuðust í kringum hana. Síðar um kvöldið settist Björk Vilhelmsdóttir hjá okkur Steinunni. Björk er fín. Raunar er hún ein af fáum góðum ástæðum fyrir því að styðja framboðið (nóg er af ástæðum til að gera það ekki). Hún er á leiðinni til Palestínu og hvatti okkur til að gera það sama. Þori ég til Palestínu að láta skjóta mig? Varla…
Leikurinn í Keflavík var fínn. Ég minnist þess ekki að hafa komið til Kebblavíkur í jafn góðu veðri. Framararnir voru frískir á köflum, en þetta gæti orðið erfitt tímabil. Kebblvíkingarnir munu hins vegar lenda í gríðarlegri fallbaráttu. Ég spái þeim niður. – Við Valur húsfélagsformaður hittum Sverri Jakobsson á Framnesveginum og tókum hann með á völlinn. Sverrir er óvirkur Framari sem mætir á einn leik á ári að jafnaði. Ætli þeir verði þó ekki 2-3 í ár.
Næsta laugardag er stefnan tekin í Grindavíkina. Það verður fjörugur dagur. Byrjað á fótbolta suður með sjó. Síðan taka við Júróvísíón, grill hjá Palla og Hildi og kosningavaka fram undir morgunn. Ég get varla beðið.
Fjármálin mín eru í steik. Ekki það að um neitt óbrúanlegt gap sé að ræða. Hins vegar setti ég helling af útgjöldum tengdum friðarráðstefnunni og barmmerkjaframleiðslunni okkar Palla á Visa-kortið mitt, en er ekki búinn að vera duglegur að rukka til baka. Þannig skuldar R-listinn okkur pening, sem gerir það að verkum að nú verður bara étið haframjöl og ýsa frá tengdapabba til mánaðarmóta. – Ég þoli ekki peningastress. Ekki verður þetta skemmtilegra í haust þegar ég þarf að skipta út Mözdunni og kaupa nýjan bíl.
Núna dugir hins vegar ekki lengur að vera með neinn aumingjaskap. Það er ekki nema rétt rúm vika í Íslenska söguþingið og ég er ekki búinn með erindið mitt. – Mikið vildi ég að hægt væri að spóla fram í tímann. Þá væri söguþingið afstaðið og HM byrjað…