Amstrad Vííí… í gær fórum við Steinunn í mat til gömlu eins og oftast á sunnudagskvöldum. Ég notaði tækifærið og klöngraðist upp á háaloft og tók traustataki gömlu Amstrad CPC 464-tölvu heimilisins. Það var glæsilegur gripur árið 1984. Með þessu fann ég eitthvað af gömlum tölvudiskum, en hef ekki enn getað skoðað þá því að …
Monthly Archives: mars 2003
Jävla fascistar Fín mótmæli í
Jí¤vla fascistar Fín mótmæli í gær fyrir framan stjórnarráðið. Palli og Steini ljósrituðu Stríðsfréttir í 300 eintökum sem kláruðust á svipstundu og Steinunn gekk í að dreifa „Halldór í herinn og herinn burt!“ og „Davíð í herinn og herinn burt!“-barmmerkjunum. Við vorum með svona 350 merki sem voru rifin út og miklu færri fengu en …
Sigurblogg Jamm, Katrín (sem ég
Sigurblogg Jamm, Katrín (sem ég hef ekkert uppá að klaga) hefur á réttu að standa. Ég skrifa sigurblogg! En ekki út af einhverri spurningakeppni – ónei! Þar er ég hlutlaus og vona að báðum liðum gangi vel. Ég hef allt aðrar ástæður til að hrósa sigri. * Ég hrósa sigri vegna þess að samkoman í …
Þegar klósettið fór að leka…
Þegar klósettið fór að leka… …þá bloggaði ég um vandamálið og skömmu síðar kom Kristbjörn í heimsókn og reddaði málinu. Reyndar eipaði líka fúla stelpan á Kreml (þessi sem heitir Svan-eitthvað) og skrifaði pirringslega grein um að blogg væri skítafyrirbæri sem gengi bara út á að lýsa biluðum heimilistækjum. Núna ætla ég sem sagt að …
Morkinn mánudagur Jæja, úr því
Morkinn mánudagur Jæja, úr því að helvítis Mogginn helgaði sunnudagsblaðið úttekt á bloggi, þá er víst við hæfi að besti og frægasti bloggari landsins drullist loksins til að uppfæra síðuna sína. Ekki vænta þess að þetta verði líflegt blogg. Ég er illilega kvefaður og skíthræddur um að ég sé með hitavellu. Það er fúlt. Til …
Eru virkilega engin takmörk… …fyrir
Eru virkilega engin takmörk… …fyrir geggjun Bandaríkjamanna og sturlaðri þjóðerniskennd um þessar mundir? Nú vill bandarísk þingkona beita sér fyrir því að fallnir hermenn úr fyrri heimsstyrjöldinni sem hvíla í Frakklandi og Belgíu verði grafnir upp og fluttir heim svo þeir þurfi ekki að liggja í landi „óvinarins“. Um þetta má lesa hér. Manni fallast …
Beðið eftir Godot Nei, ekki
Beðið eftir Godot Nei, ekki eftir Godot – heldur flensunni. Og munurinn á bið minni og flækinganna tveggja í verki Beckets er sá að ég get verið nokkuð viss um að stefnumótið haldi. Hvernig get ég verið svo viss um það að fá flensuna? Er ég farinn að kenna mér meins? Hausinn þungur, hitavella og …
Stund sannleikans! Það er sök
Stund sannleikans! Það er sök sér að heiminum sé stjórnað af fávitum – það er ekkert nýtt. Illmenni hafa líka ráðið ferðinni í veröldinni lengst af – ekkert nýtt þar. En hvers vegna í ósköpunum þurfa herrar Jarðarinnar, leiðtogar Bandaríkjanna að vera svona klisjukenndir? Hvers vegna geta þeir ekki leitað í smiðju Shakespeares eða í …
Félagafargan Urgh! Í gær gleypti
Félagafargan Urgh! Á gær gleypti tölvan ógnarmikla bloggfærslu. Ég var gráti næst! Ætla samt að reyna að rifja upp aðalatriðin í henni. Þannig er mál með vexti að á föstudaginn fór ég ásamt Steinunni og tengdó á stofnfund Femínistafélags Íslands. Þá fór ég að spá í því hvað ég sé eiginlega félagsmaður í mörgum félögum? …
Lilja 4-ever Úff, fór í
Lilja 4-ever Úff, fór í gær á Lilya 4-ever í Háskólabíói og er ennþá hálfmiður mín. Stemningin í hléi og að myndinni lokinni var eins og í barnajarðarför. Það var augljóst að myndin hreyfði við flestum í salnum. Flestir sem gera mynd um þetta efni falla í þá gryfju að velta sér upp úr ofbeldinu …